Innlent

Eldur kom upp í húsi á bak við slökkvistöðina í Keflavík

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Slökkviliðið að störfum.
Slökkviliðið að störfum. Vísir/Jóik
Eldur kom upp á Hafnargötu 88 í Keflavík og var slökkvilið og lögreglan kölluð til á vettvang. Betur fór en á horfðist og var eldurinn slökktur innan skamms. Samkvæmt slökkviliði Suðurnesja var eldurinn minniháttar og kom upp á palli hússins.

Húsið er staðsett fyrir aftan slökkvistöðina og fékk slökkviliðið aðstoð frá vegfarendum sem voru byrjaðir að slökkva eldinn með handslökkvitækjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×