Golf

Frábær endasprettur Stenson færði honum sigurinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Henrik Stenson fagnar sigrinum í gær.
Henrik Stenson fagnar sigrinum í gær. Vísir/Getty
Hinn sænski Henrik Stenson vann í gær sitt fyrsta mót eftir sigurinn á Opna breska í fyrra, er hann bar sigur úr býtum á Wyndham-mótinu á PGA-mótaröðinni.

Stenson spilaði frábærlega í gær eða á 64 höggum og endaði á 22 höggum undir pari, einu á undan Ollie Schniederjans frá Bandaríkjunum.

Stenson fékk átta fugla á lokahringnum í gær, þar af þrjá í röð frá fimmtándu til sautjándu holu sem færði honum sigurinn.

Schniederjans spilaði einnig á 64 höggum í gær en Webb Simpson endaði í þriðja sæti á átján höggum undir pari.

„Ég veit ekki hversu mörg tækifæri ég fæ til viðbótar að spila jafn vel og ég gerði á Troon [vellinum þar sem Opna breska fór fram í fyrra]. En ég er mjög ánægður með hvernig mér tókst að klára þetta mót.“

Stenson rauk upp í 23. sæti stigalista PGA-mótaraðarinnar með sigrinum en þetta var síðasta mót tímabilsins áður en FedEx-bikarinn hefst.

125 stigahæstu kylfingarnir fá að taka þátt í keppninni, sem telur alls fjögur mót. Sigurvegarinn á lokamótinu fær tíu milljónir dollara í sinn hlut.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×