Lífið

Dómari í America´s Got Talent slær í gegn í dulargervi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mandel er alltaf nokkuð spaugilegur karakter.
Mandel er alltaf nokkuð spaugilegur karakter.
Howie Mandel, einn af dómurunum í America´s Got Talent, fór í dulargervi á dögunum og þóttist hann vera vera aðstoðarkonan Harriet.

Hann fékk allsherjar yfirhalningu og er í raun ótrúlegt hvað hægt er að gera með hárkollu og förðun.

Harriet tók á móti keppendum sem voru á leiðinni í áheyrnaprufu. Hún spyr keppendur mjög furðulegra spurninga og bregðast þeir eðlilega nokkuð einkennilega við.

Hér að neðan má sjá Mandel sem konu.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×