Lífið

Kameldýr stöðvaði bílaumferð á Írlandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stórfurðulegt atvik.
Stórfurðulegt atvik.
Nokkuð sérstakt atvik átti sér stað á Írlandi um helgina þegar kameldýr stöðvaði bílaumferð.

Killian Burns var á leið sinni til Dyflinnar á fótboltaleik á laugardaginn þegar hann varð að stöðva bifreið sína þar sem dýrið stóð á miðri götunni. Svo virðist sem kameldýrið hafi sloppið úr sirkus í nágrenninu.

Burns tók auðvitað upp símann og myndaði þetta í bak og fyrir eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×