Enski boltinn

Ungstirni Fulham undir smásjá Man Utd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ryan Sessegnon er einn efnilegasti leikmaður Englands.
Ryan Sessegnon er einn efnilegasti leikmaður Englands. vísir/getty
Ryan Sessegnon, 17 ára leikmaður Fulham, er undir smásjá Manchester United. Sky Sports greinir frá.

Sessognon, sem spilar oftast sem vinstri bakvörður, þykir einn af efnilegustu leikmönnum Englands.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Sessognon leikið 35 leiki og skorað sjö mörk fyrir Fulham. Þá var hann í lykilhlutverki hjá enska U-19 ára liðinu sem varð Evrópumeistari fyrr í sumar.

Tottenham hefur einnig áhuga á Sessegnon og hefur fylgst með honum í rúmt ár.

Fulham hefur þó engan áhuga á að selja þennan efnilega leikmann að því er fram kemur í frétt Sky Sports.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×