Enski boltinn

Sjáðu 200. mark Rooney og uppgjör helgarinnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Wayne Rooney skoraði sitt 200. deildarmark á ferlinum þegar hann kom Everton 1-0 yfir gegn Manchester City í lokaleik 2. umferðar í gærkvöldi.

Markið dugði reyndar ekki til sigurs þó svo að City hafi misst Kyle Walker af velli með rautt spjald. Raheem Sterling jafnaði metin með góðu skoti í síðari hálfleik.

Mörk þeirra og öll tilþrif helgarinnar má sjá í meðfylgjandi myndböndum. Þess má geta að Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem varamaður í sínum fyrsta leik með Everton í gær.

Rauða spjaldið sem Walker fékk var þá ekki það eina sem kom í leiknum þar sem að Morgan Schneiderlin fékk einnig að líta tvær áminningar í leiknum, þá síðari eftir brot á Sergio Agüero.

Weekend Roundup
Moment of the Week
Goals of the Week
Saves of the Week

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×