Innlent

Eldur kom upp í húsi í Hnífsdal

Gissur Sigurðsson skrifar
Hnífsdalur.
Hnífsdalur. Vilmundur Hansen
Eldur kom upp í íbúðarhúsi í Hnífsdal um klukkan átta í gærkvöldi.

Íbúi sem var einn í húsinu komst út og var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafriði til aðhlynningar.

Slökkviliðið á Ísafirði var kallað út og gekk slökkvistarf vel en mikill reykur var í húsinu.

Eldsupptök eru ókunn, en lögregla rannsakar málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×