Innlent

Slasaðist illa á hendi

Atli Ísleifsson skrifar
Lögregla rannsakar málið.
Lögregla rannsakar málið. Vísir/Pjetur
Stúlka slasaðist illa á hendi í vinnuslysi á bóndabæ, skammt austan við Þjórsá, í morgun.

Lögregla á Selfossi segir að stúlkan hafi verið flutt í skyndi á slysadeild Landspítalans í Fossvogi.

Ekki er vitað um tildrög slyssins á þessari stundu en lögreglumenn eru nú staddir á vettvangi slyssins.

Uppfært 15:02:

Garðar Már Garðarson, varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir að stúlkan hafi klemmt framhandlegg sinn við ullarvinnslu. Hún hafi gengist undir aðgerð á Landspítalanum.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×