Innlent

Slökkvilið kallað út vegna gas- og brunalyktar á KFC

Atli Ísleifsson skrifar
Tilkynning barst um gas- og brunalykt.
Tilkynning barst um gas- og brunalykt. Vísir/STefán
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er nú á leið á KFC í Sundagörðum eftir að tilkynning barst um gas- og brunalykt þaðan.

Slökkvilið var enn ekki komið á staðinn þegar Vísi náði samband við starfsmann slökkviliðsins í Skógarhlíð klukkan 14:05.

Uppfært 14:26:

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði var um að ræða bilun í búnaði fyrir goskæla. Búið er að hringja í þjónustuaðila og lofta út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×