Glamour

Alpahúfan er komin aftur fyrir haustið

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Margir hafa mismunandi minningar þegar þeir hugsa um gömlu góðu alpahúfuna, og er hægt að tengja hana bæði við tísku fjórða áratugarins, pólítískar hreyfingar eða franska konu í röndóttum bol í París. 

Alpahúfan hefur að sjálfsögðu verið lengi til staðar í búðum og mjög oft til í mismunandi útfærslum, en orðið mun meira áberandi síðustu mánuði. 

Alpahúfan er nefnilega komin sterk inn fyrir haustið, og er það Maria Grazia Chiuri, yfirhönnuður Christian Dior sem kom henni á kortið. Maria sendi nánast hverja einustu fyrirsætu niður tískupallinn með leður-alpahúfu fyrir haust-og vetrarlínuna 2017/2018. Síðan þá hafa stjörnur eins og Rihanna og fyrirsætan Bella Hadid sést með húfuna og verður þessi húfa mjög áberandi í vetur.

Hvort sem það er í leðri eða úr öðru efni, finnum okkur alpahúfu fyrir haustið.



Leikkonan Greta Garbo árið 1932, fyrir myndina As You Desire Me. Með velúr-alpahúfu. 

The Black Panther var pólítísk hreyfing sem barðist fyrir réttindum svartra í Ameríku, í kringum 1960-1970. Þeir báru svartar alpahúfur. 

Christian Dior
Christian Dior
Fyrirsætan Bella Hadid
Á tískupöllum Jacquemus fyrir haust/vetur 2017/2018.
Rihanna með leður-alpahúfu frá Christian Dior.





×