Viðskipti innlent

Átta missa vinnuna hjá Kviku

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, segir aðgerðirnar óumflýjanlegur hluti af breytingum sem framundan séu.
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, segir aðgerðirnar óumflýjanlegur hluti af breytingum sem framundan séu.
Markaðs- og mannauðssviðs Kviku verður lagt niður í þeirri mynd sem verið hefur og verkefni sem þar hafa verið unnin færð til. Átta manns missa vinnuna vegna þessa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kviku. Þar segir að breytingarnar tengist fyrirhuguðum samruna við Virðingu og Öldu ásamt breytingum á skipulagi bankans.

„Framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar bankans hefur látið af störfum, en stefnt er að því að hann muni áfram vinna með bankanum að ákveðnum verkefnum. Tilkynnt verður um nýjan framkvæmdastjóra fyrirtækjaráðgjafar fljótlega, en fram til þess tíma mun forstjóri stýra rekstri sviðsins,“ segir í tilkynningunni.

„Ég vil þakka því fólki sem lét af störfum í dag fyrir vel unnin störf hjá bankanum og óska þeim velfarnaðar á nýjum stöðum. Það er mjög leitt að kveðja gott og dugmikið fólk sem hefur unnið fyrir bankann af samviskusemi á undanförnum árum en því miður eru aðgerðir sem þessar óumflýjanlegur hluti af þeim breytingum sem fram undan eru,“ segir Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×