Lífið

Demi Lovato syngur þjóðsöng Bandaríkjanna fyrir bardaga ársins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Demi Lovato kemur fram í Las Vegas á laugardaginn.
Demi Lovato kemur fram í Las Vegas á laugardaginn.
Söngkonan Demi Lovato mun taka þjóðsöng Bandaríkjamanna fyrir bardaga ársins milli Floyd Mayweather og Conor McGregor í Las Vegas á laugardagskvöldið. 

Þetta kemur fram á vefsíðu TMZ. 

Lovato er mikill aðdáandi bardagaíþrótta og mætir reglulega á UFC-kvöld. Hún æfir sjálf MMA í Jay Glazer líkamsræktarstöðinni í Los Angeles

Bardaginn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 01:00 á laugardaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×