Formúla 1

Kimi Raikkonen áfram hjá Ferrari 2018

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ísmaðurinn Kimi Raikkonen verður áfram í Formúlu 1 á næsta ári, mörgum til mikillar gleði.
Ísmaðurinn Kimi Raikkonen verður áfram í Formúlu 1 á næsta ári, mörgum til mikillar gleði. Vísir/Getty
Ferrari liðið í Formúlu 1 hefur staðfest í tilkynningu að finnski ökumaðurinn Kimi Raikkonen verði áfram hjá liðinu á næsta tímabili.

Framtíð Raikkonen var óvís hjá Ferrari enda var Sergio Marchionne, forseti Ferrari búinn að segja að Raikkonen þyrfti að sanna sig til að halda sæti sínu hjá liðinu. Raikkonen er sem stendur 86 stigum á eftir liðsfélaga sínum og fremsta manni í heimsmeistarakeppni ökumanna, Sebastian Vettel.

Talið var mögulegt að Charles Leclerc, sem er á mála hjá ökumannaakademíu Ferrari og leiðir GP2 mótaröðina sem stendur yrði færður upp í aðallið Ferrari. Líklega verður bið á því. Ferrari á þó enn eftir að staðfesta hinn ökumann liðsins fyrir næsta tímabil. Líklegast verður það Sebastian Vettel sem nú ekur fyrir liðið og leiðir heimsmeistarakeppni ökumanna. Það getur þó allt gerst í Formúlu 1.

Líklega hefur Ferrari fundið vaxandi ákveðni hjá Raikkonen og hegðun hans að undanförnu gefur til kynna að hann sé reiðubúinn að spila einkennisleik Felipe Massa og vera góður annar ökumaður til stuðnings fyrsta ökumanni liðsins.

Raikkonen var til að mynda afar mikilvægur þáttur í því að Vettel vann í Ungverjalandi þar sem Vettel glímdi við skakkt stýri alla keppnina og Raikkonen spilaði varnarleik fyrir aftan. Alls ekki allir ökumenn hefðu látið bjóða sér það að fá ekki að taka fram úr.

Raikkonen kom fyrst inn í Formúlu 1 árið 2001, þá með Sauber liðinu. Hann ók svo fimm ár hjá McLaren.

Raikkonen skipti svo yfir til Ferrari árið 2007 þar sem hann tryggði sér heimsmeistaratitil ökumanna á sínu fyrsta ári. Hann kvaddi svo Formúlu 1 árið 2009 og tók þá til við rallý akstur. Hann kom sneri svo aftur til keppni í Formúlu 1 árið 2012, þá með Lotus liðini. Hann kom svo aftur til Ferrari 2014 þar sem hann hefur verið síðan og verður áfram.


Tengdar fréttir

Valtteri Bottas í toppformi hjá Mercedes

Valtteri Bottas segist vera kominn í toppform aftur eftir vistaskiptin til Mercedes í upphafi árs. Hann segist vera búinn að koma sér fyrir hjá Mercedes eftir að hann kom frá Williams.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×