Viðskipti innlent

Skórisi hagnast um 159 milljónir

Haraldur Guðmundsson skrifar
Markaðshlutdeild S4S á skómarkaðnum er allt að 50 prósent.
Markaðshlutdeild S4S á skómarkaðnum er allt að 50 prósent. Vísir/Ernir
Heildverslunin S4S, sem rekur skóverslanir á höfuðborgarsvæðinu, hagnaðist um 159,4 milljónir króna í fyrra. Afkoma fyrirtækisins var þá 48 milljónum betri en árið 2015 og rekstrartekjur jukust um 159 milljónir og námu 1.936 milljónum.

Hagnaður S4S fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 222 milljónir samanborið við 172,5 milljónir árið 2015. Í árslok 2016 námu eignir félagsins 761 milljón en skuldirnar 380 milljónum.

S4S á og rekur skóverslanirnar Steinar Waage, Ecco, Kaupfélagið, Skór.is, Toppskóinn og íþróttavöruverslunina Air.is í Smáralind. Pétur Þór Halldórsson er stærsti eigandi S4S með helmingshlut. Fjárfestingarfélagið Sjávarsýn, í eigu Bjarna Ármannssonar, fjárfestis og fyrrverandi forstjóra Glitnis, keypti í október í fyrra 26 prósenta hlut í heldversluninni, eins og Markaðurinn greindi frá. Aðrir eigendur eru Hermann Helgason, framkvæmdastjóri S4S, og Georg Kristjánsson, en báðir eiga þeir hvor sín tólf prósentin. Sjávarsýn seldi í maí síðastliðnum allt hlutafé í útivistar- og lífstílsfyrirtækinu Ellingsen til S4S.

Samkvæmt nýbirtum ársreikningi fyrirtækisins lagði stjórn þess til að greiddur yrði arður til hluthafa á yfirstandandi ári að upphæð allt að 160 milljónir króna. Eigendur félagsins hafa því greitt sér alls 360 milljónir í arð frá ársbyrjun 2015.

Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×