Enski boltinn

Birkir skoraði og lagði upp í stórsigri

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Birkir í leik með Villa.
Birkir í leik með Villa. vísir/getty
Birkir Bjarnason fékk loksins tækifæri með Aston Villa í kvöld og þakkaði traustið með marki og stoðsendingu í stórsigri á Wigan í deildabikarnum.

Lokatölur 4-1 fyrir Villa. Birkir lagði upp annað markið og skoraði það fjórða. Hann lék allan leikinn á miðjunni.

Það var enginn Aron Einar Gunnarsson í liði Cardiff City sem varð að sætta sig við tap, 1-2, gegn Burton Albion á heimavelli.

Hörður Björgvin Magnússon lék í vörn Bristol City sem vann 2-3 sigur á úrvalsdeildarliði Watford. Vasklega gert.

Axel Óskar Andrésson var í fyrsta sinn í liði Reading í kvöld er það lék gegn Millwall í deildabikarnum. Sá leikur er nú í framlengingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×