Sport

Embedded: Mayweather lipur á hjólaskautum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Það gengur á ýmsu á bak við tjöldin en í þættunum Embedded er hitað upp fyrir bardaga Conor McGregor og Floyd Mayweather á laugardagskvöldið.

Annar þátturinn hefur verið birtur og má sjá hann þar fyrir neðan. Í honum hittir Conor dómara bardagans og tekur eina sína bestu æfingu í undirbúningnum, að sögn þjálfarans John Kavanagh.

Conor fær einnig að sjá svefnklefa sem er sérstaklega hannaður fyrir bardagakappa og á að hjálpa þeim í undirbúningnum.

Floyd Mayweather lítur við í einni þeirri verslun sem hefur verið opnuð í tilefni af bardaganum og hittir aðdáendur sína. Þá fer hann á hjólaskauta og sýnir lipra takta þar.

Bardagi Conors og Mayweather fer fram á laugardag en bardaginn verður í beinni á Stöð 2 Sport. Hægt er að kaupa áskrift á 365.is.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×