Lífið

Mel B skvetti vatni yfir Cowell og rauk af sviðinu eftir óviðeigandi brandara

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessi sló ekki beint í gegn.
Þessi sló ekki beint í gegn.
Spaugilegt atvik átti sér stað í raunveruleikaþættinum America´s Got Talent í gærkvöldi en þá sauð uppúr á milli Mel B og Simon Cowell eftir að Demian Aditya hafði sýnt sitt atriði.

Simon Cowell var ekkert sérstaklega hrifinn af atriðinu og sagði; „Þetta hefur sennilega verið eins og brúðkaupsnóttin hjá Mel B. Miklar eftirvæntingar en útkoman slæm.“

Mel B stóð strax upp og skvetti vatnsglasi á Simon. Því næst rauk hún út úr salnum, en snéri til baka að lokum. Ekki er ólíklegt að hún hafi tekið þátt í brandaranum með Cowell sem hafi verið fyrirfram ákveðinn.

Kryddpían Mel B fékk fyrr á árinu nálgunarbann gegn fyrrverandi eiginmanni sínum Stephen Belafonte en hann mun hafa beitt hana mjög alvarlegu ofbeldi í áraraðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×