Körfubolti

Tryggvi með 19 stig í tapi á móti Litháen

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason í leik með íslenska landsliðinu.
Tryggvi Snær Hlinason í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Ernir
Íslenska körfuboltalandsliðið átti frekar erfitt uppdráttar í kvöld á móti gríðarlega sterku liði Litháen í síðasta undirbúningsleik sínum fyrir Evrópumótið sem hefst í Helsinki í næstu viku.

Litháen vann leikinn á endanum með 22 stigum, 84-62, eftir að hafa verið 25 stigum yfir í hálfleik. Þetta er þó mikil framför frá síðasta landsleik þjóðanna fyrir fimm ár en þá töpuðu íslensku strákarnir með 50 stiga mun.

Tryggvi Snær Hlinason stóð sig mjög vel í kvöld og var stigahæstur í íslenska liðinu með 19 stig. Hann fékk líka dýrmæta reynslu í kvöld að glíma við NBA-stjörnuleikmanninn Jonas Valanciunas. Tryggvi var einnig með 7 fráköst og 2 varin skot á 28 mínútum en Toronto Raptors maðurinn endaði með 14 stig, 11 fráköst og 2 varin skot á 20 mínútum.

Martin Hermannsson hélt uppi sóknarleik íslenska liðsins eins og í síðustu leikjum en hann var með 14 stig og 7 stoðsendingar í kvöld auk þess að stela 4 boltum.

Mindaugas Kuzminskas, leikmaður New York Knicks, var stigahæstur hjá Litháen með 17 stig á 20 mínútum en hann hitti úr 4 af 5 skotum utan af velli og öllum sjö vítunum.

Martynas Gecevicius, leikamaður CAI Zaragoza á Spáni var með 16 stig en hann hitti úr öllum fjórum þriggja stiga skotunum sínum.

Jón Arnór Stefánsson og Haukur Helgi Pálsson voru á skýrslu samkvæmt tölfræði Litháanna en komu ekki inná í þessum leik. Það er gott að eiga þessa kappa inni í fyrsta leik á EM.

Litháar komust í 9-2 og 21-9 í upphafi leiks, unnu fyrsta leikhlutann 27-15 og voru síðan 25 stigum yfir í hálfleik, 52-27.

Litháarnir hittu úr 8 af 12 þriggja stiga skotum sínum í fyrri hálfleiknum á meðan íslenska liðið klikkaði á öllum tíu sínum. Þar munaði 24 stigum í hálfleiknum á stigum úr þriggja stiga skotum.

Tryggvi Snær Hlinason var stigahæstur í hálfleiknum með 9 stig en Martin Hermannsson skoraði 7 stig.

Íslenska liðið skoraði sjö fyrstu stig seinni hálfleiks og Litháar tóku leikhlé eftir aðeins rúmlega tveggja mínútna leik. Þá munaði 18 stigum á liðunum, 52-34.

Litháar gáfu þá aftur en annar sprettur íslenska liðsins kom muninum niður í sextán stig, 66-50, fyrir lokaleikhlutann.

Litháar kláruðu síðan leikinn með því að bæta aðeins í lokaleikhlutanum og munurinn endaði í 22 stigum.



Stig íslenska liðsins í leiknum:

Tryggvi Snær Hlinason 19 (7 fráköst, 2 varin skot)

Martin Hermannsson 14 (7 stoðsendingar, 4 stolnir boltar)

Kristófer Acox 8 (4 fráköst á 16 mínútum)

Logi Gunnarsson 7 (6 fráköst, 3 stoðsendingar)

Hlynur Bæringsson 7

Ægir Þór Steinarsson 4

Pavel Ermolinskij 3




Fleiri fréttir

Sjá meira


×