Innlent

Minnsta menningarsetur landsins rís í náttborði

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Skakkasafn er skiptibókasafn í náttborði sem eflir nágrannavitund og kærleika. Næsta skref er að opna Gallerý Skúffu í náttborðsskúffunni.

Í Smáíbúðahverfinu rís nú menningarsetur með bókasafni og gallerýi. Setrið er mögulega minnst sinnar tegundar en það er hýst í gömlu náttborði við Sogaveginn. Hugmyndin er að færa menninguna út í hverfin og efla nágrannakærleikann.

Bókasafnið er að bandarískri fyrirmynd þar sem fólk getur deilt góðum bókum með nágrönnum sínum.

„Þetta heitir Skakkasafn. Þetta átti að heita Sogavegssafn en þegar það var komið á staurinn var það svo skakkt, þannig að nafnið kom að sjálfu sér," segir Brynhildur Heiðarsdóttir Ómarsdóttir, bókmenntafræðingur og íbúi í Smáíbúðahverfinu.

Skakkasafn var fyrst sett upp fyrir tveimur árum en fauk niður síðustu jól. Nú er búið að endurbyggja safnið úr gömlu náttborði.

„Stór hluti af hugmyndafræðinni er að vinna úr endurnýjanlegum hlutum, vinna úr efni sem er þegar til sem færi annars á haugana, og gera eitthvað nýtt til að fegra umhverfið,“ segir Brynhildur sem hefur stóra drauma um framtíð safnsins.

Á næstu vikum mun nefnilega Gallerý skúffa opna, við hlið bókasafnsins, þar sem listamenn geta sýnt verk sín í náttborðsskúffunni. Þá mun Skakkasafn verða að sannkölluðu menningarsetri.

Brynhildur segir hugmyndafræðina snúast um að efla menninguna úti í hverfunum - en ekki takmarka hana við 101 Reykjavík.

„Þetta snýst um að gera almennileg almenningsrými í hverfinu. Gera eitthvað til að auka hverfiskærleikann. Ég þekki nágranna mína betur eftir að ég byggði safnið, við tölum saman um bækur og skiptumst á uppáhalds bókunum okkar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×