Íslenski boltinn

Rakel með fernu í stórsigri Blika

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rakel og Fanndís fögnuðu oft í kvöld.
Rakel og Fanndís fögnuðu oft í kvöld. vísir/anton
Breiðablik minnkaði forskot Þórs/KA í Pepsi-deild kvenna niður í átta stig í kvöld.

Blikastúlkur unnu þá stórsigur, 7-2, á botnliði Hauka sem sáu ekki til sólar í leiknum.

Rakel Hönnudóttir skoraði fjögur mörk fyrir Blika í kvöld. Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Selma Sól Magnúsdóttir og Fanndís Friðriksdóttir komust einnig á blað.

Vienna Behnke og Alexandra Jóhannsdóttir skoruðu mörk Hauka í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×