Erlent

Tónleikum frestað vegna yfirvofandi hryðjuverkahættu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Tónleikarnir áttu að fara fram í Rotterdam.
Tónleikarnir áttu að fara fram í Rotterdam. Vísir/Getty
Tónleikum sem halda átti í Rotterdam í Hollandi í kvöld hefur verið frestað eftir að ábending barst frá spænsku lögreglunni um yfirvofandi hryðjuverk.

Gaskútar fundust í rútu á nærliggjandi svæði og var ökumaður hennar handtekinn og færður til yfirheyrslu.

Í frétt Reuters segir að óvíst hvort tengsl séu á milli rútunnar og þeirrar ábendingu sem barst frá spænsku lögreglunni.

Bandaríska hljómsveitin The Allah-lahs átti að koma fram á tónleikunum. Spænska lögreglan hefur að undanförnu unnið að rannsókn hryðjuverksins sem framið var í Barcelona í síðustu viku þar sem fimmtán létu lífið. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×