Íslenski boltinn

Ótrúlegar lokamínútur á Hlíðarenda

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik liðanna í kvöld.
Úr leik liðanna í kvöld. vísir/ernir
Valur vann dramatískan 3-2 sigur á Fylki í Pepsi-deild kvenna í kvöld.

Vesna Smiljkovic kom Val yfir í upphafi leik en Brooke Hendrix jafnaði rétt fyrir hlé.

Fjandinn varð svo laus á lokamínútunum. Ariana Calderon kom Val yfir sjö mínútum fyrir leikslok en Kaitlyn Johnson jafnaði fyrir Fylki er þrjár mínútur voru til leiksloka.

Það var svo Smiljkovic sem tryggði Valsstúlkum sigur með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Valur komst í þriðja sæti deildarinnar með sigrinum en er tíu stigum á eftir toppliði Þórs/KA. Fylkir er í næstneðsta sæti og lítið annað en fall bíður liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×