Viðskipti erlent

Ríkasta fólkið í tæknigeiranum aldrei ríkara

Sæunn Gísladóttir skrifar
Bill Gates stofnandi Microsoft er ríkasti maðurinn á lista Forbes.
Bill Gates stofnandi Microsoft er ríkasti maðurinn á lista Forbes. vísir/epa
Samanlagðar eignir ríkustu tæknifrumkvöðla heims eru nú í fyrsta sinn yfir einni billjón Bandaríkjadala samkvæmt nýjum lista Forbes yfir ríkustu starfsmenn tæknifyrirtækja.

Eignirnar hafa hækkað um 21 prósent milli ára.

City A.M. greinir frá því að samtals eiga tæknifrumkvöðlar á borð við Bill Gates, Mark Zuckerberg og Jeff Bezos 1,08 billjónir dala, jafnvirði 114 billjóna króna.

Gates, sem stofnaði Microsoft, er ríkastur og efstur á listanum en hann er metinn á 84,5 milljarða dala, þrátt fyrir að hafa gefið umtalsverðan hlut eigna sinna til góðgerðarmála síðustu áratugi. Bezos, stofnandi Amazon, fylgir fast á eftir með eignir metnar á 81,7 milljarða dala. Zuckerberg, stofnandi Facebook, er svo í þriðja sæti.

Rekja má aukinn auð hópsins til þess að gengi hlutabréfa í tæknifyrirtækjum hefur almennt hækkað umtalsvert undanfarið. Á síðustu fjórtán mánuðum hefur gengi hlutabréfa í Facebook hækkað um 44 prósent, hlutabréf í Microsoft hækkað um 46 prósent og hlutabréf í Amazon um 27 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×