Innlent

Úrskurður gerðardóms vegna BHM að renna út: „Verkfall er ekki á óskalista nokkurs manns“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá mótmælum BHM og Félags hjúkrunarfræðinga við stjórnarráðshúsið í Lækjargötu í verkföllunum 2015. Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, er fremst til hægri á myndinni.
Frá mótmælum BHM og Félags hjúkrunarfræðinga við stjórnarráðshúsið í Lækjargötu í verkföllunum 2015. Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, er fremst til hægri á myndinni. Vísir/Pjetur
BHM sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem seinagangur ríkisins vegna komandi kjaraviðræðna er gagnrýndur. Úrskurður gerðardóms frá árinu 2015 fyrir sautján aðildarfélög BHM rennur út eftir viku. Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, segir í samtali við Vísi að aðildarfélögin hafi verið að reyna að ná fundi með samninganefnd ríkisins, meðal annars til að undirrita viðræðuáætlanir, en án árangurs.

Ástæðan er sú að dregist hefur að fullskipa í samninganefndina en Þórunn kveðst eiga von á því að fjármála-og efnahagsráðuneytið klári að skipa í nefndina í seinasta lagi í dag.

„Okkur fannst ástæða til að vekja athygli á því að það hefur dregist að skipa í nefndina og líka í ljósi þess hvað tíminn líður hratt,“ segir Þórunn.

Fram kemur í yfirlýsingu BHM að samkvæmt þeim viðræðuáætlunum sem hafa verið undirritaðar á að ganga frá kjarasamningum fyrir næstu mánaðamót. Þórunn kveðst ekki bjartsýn á að það náist.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, þegar mál þess gegn ríkinu vegna lagasetningar á verkföll fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur árið 2015.vísir/ernir
Horfa meðal annars til launahækkanna þeirra sem heyra undir kjararáð

„Það er þannig samkvæmt vinnumarkaðslöggjöfinni að nýr samningur á að taka við af þeim sem rennur út. Þetta er auðvitað dálítið öðruvísi hjá okkur núna vegna þess að félögin fengu á sig úrskurð gerðardóms þannig að það er ekki verið að halda áfram með samning sem slíkan þó úrskurðurinn hafi gilt sem samningur. En auðvitað er almenna reglan sú og það teljast góð vinnubrögð að láta ekki líða of langt á milli gamals og nýs kjarasamnings,“ segir Þórunn.

Hún segir BHM ekki hafa fengið nein viðbrögð frá ríkinu við yfirlýsingunni frá því í gær en fyrr í mánuðinum átti félagið góðan fund með Benedikt Jóhannessyni, fjármála-og efnahagsráðherra, að sögn Þórunnar. Þá væntir hún þess að lokið verði að skipa í samninganefndina í dag, eins og áður segir.

Þórunn segir að við kröfugerðir horfi BHM á launaþróun allra ríkisstarfsmanna, þar með talið þeirra sem heyra undir kjararáð og hafa fengið launahækkanir undanfarið. Ýmis verkalýðsfélög, þar á meðal BHM, hafa gagnrýnt þær hækkanir harðlega enda telja þeir þær úr takti við almenna launaþróun í landinu.

„Við horfum að sjálfsögðu á launaþróun allra ríkisstarfsmanna, líka þeirra sem hafa heyrt undir kjararáð og fengið ríflegar hækkanir. Við horfum auðvitað til þeirra samninga sem er nýbúið að gera, til að mynda við lækna, en svo er það líka þannig að hvert og eitt félag greinir stöðu sinna félagsmanna með tilliti til launaþróunar sambærilegra hópa, bæði hjá ríkinu og á almenna markaðnum.“

Myndin er frá mótmælastöðu í aðgerðum BHM og hjúkrunarfræðinga á Austurvelli sumarið 2015, þegar viðræður stóðu við ríkið.vísir/Stefán
Ekkert hægt að segja hvort að farið verði í verkföll líkt og í síðustu kjaradeilu

Að sögn Þórunnar hafa kröfugerðir ekki verið gerðar opinberar fyrr en á fyrsta fundi með samninganefnd ríkisins en svo er það í höndum félaganna að upplýsa um kröfugerðir sínar. Það sé ekki komið að því.

 

Kjaradeila BHM og ríkisins árið 2015 var afar hörð og endaði með því að Alþingi setti lög á verkföll tæplega 700 félagsmanna BHM. Verkföllin höfðu þá staðið yfir í tíu vikur en á meðal þeirra sem voru í verkfalli voru ljósmæður, geislafræðingar og lögfræðingar hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.

Þórunn segir enga leið að segja til um það fyrirfram hvort að viðræðurnar núna verði að jafnharðri kjaradeilu og síðast.

„Auðvitað vonum við að í þetta sinn verði lokið við kjarasamninga í frjálsum samningum. Þannig á það að vera alla jafna og að sjálfsögðu viljum við ná kjarasamningum við ríkið. Okkur hefur hingað til tekist að semja við aðra atvinnurekendur, sveitarfélög og atvinnurekendur á almennum markaði. Ríkið er stærsti vinnuveitandi í landinu og ég trúi ekki öðru en að í þetta sinn sé ríkið tilbúið til að virða samningsréttinn,“ segir Þórunn.

Þannig að það er ekki efst á ykkar óskalista að fara í verkfall?

„Það að fara í verkfall er ekki á óskalista nokkurs manns.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×