Undramark Gylfa kom Everton í Evrópudeildina

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gylfi skoraði gull af marki í kvöld
Gylfi skoraði gull af marki í kvöld vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson skaut sig inn í hjörtu stuðningsmanna Everton í kvöld með líklega sínu fallegasta marki á ferlinum.

Það mark kom eftir aðeins 13 sekúndna leik í síðari hálfleik gegn Hadjuk Split frá Króatíu. Hann vann boltann á miðjunni, er rétt fyrir innan miðju á hægri kantinum. Okkar maður lætur óvænt vaða og boltinn söng í netinu. Ótrúlegt.

Þarna jafnaði Gylfi leikinn í 1-1 og það dugði. Everton vann einvígið 3-1 samtals og tryggði sér sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Matthías Vilhjálmsson spilaði síðasta hálftímann fyrir Rosenborg er liðið lagði Ajax 3-2 og vann einvígi liðanna samtals, 4-2.

Gríðarlega vel gert en eins og menn muna þá fór Ajax alla leið í úrslitaleikinn á síðustu leiktíð en kemst ekki í riðlakeppnina að þessu sinni.

Arnór Ingvi Traustason sat svo allan tímann á bekknum er lið hans, AEK, tryggði sér 3-0 sigur á Club Brugge.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira