Erlent

Trump heldur áfram að bauna á leiðtoga eigin flokks

Kjartan Kjartansson skrifar
Ryan (t.v.) og McConnell (t.h.) sitja nú undir skeytasendingum eigin forseta.
Ryan (t.v.) og McConnell (t.h.) sitja nú undir skeytasendingum eigin forseta. Vísir/AFP
Leiðtogar Repúblikanaflokksins í Bandaríkjaþingi bera ábyrgð á því „klúðri“ sem mun skapast þegar hækka þarf skuldaþak bandaríska ríkisins, að mati Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Hann hélt áfram árásum sínum á leiðtoga eigin flokks á Twitter í morgun.

Mitch McConnell, oddviti repúblikana í öldungadeildinni, og Paul Ryan, leiðtogi þeirra í fulltrúadeildinni, urðu fyrir barðinu á bræði forsetans í morgun. Sakaði Trump þá um að hafa hunsað tillögu sína um lausn á fyrirsjáanlegum átökum um skuldamál ríkissjóðs.

Vildi Trump að þeir tengdu tillögu um að hækka skuldaþak ríkisins við vinsælt frumvarp um aðstoð við uppgjafarhermenn sem Bandaríkjaþing hefur þegar samþykkt. Það gerðu Ryan og McConnell hins vegar ekki.

„Þeir gerðu það ekki svo að nú þurfum við að eiga við demókrata sem tefja (eins og venjulega!) samþykkt skuldaþaksins. Hefði getað verið svo auðvelt-nú er það klúður!“ tísti Trump í morgun.

Trump spáir því að viðræður um hækkun skuldaþaksins verði klúður og kennir leiðtogum repúblikana um.Vísir/AFP
Þurfa að hækka þakið til að halda ríkisrekstinum gangandi

Bandaríska alríkisstjórnin hefur þurft að fjármagna rekstur sinn með lántökum undanfarin ár. Bandaríkjaþing hefur hins vegar sett þak á hversu mikið ríkisstjórnin getur skuldsett ríkissjóð.

Þingmenn þurfa að samþykkja að hækka þakið fyrir lok næsta mánaðar en annars er hætta á að rekstur alríkisstjórnarinnar stöðvist. Það gerðist síðast í hálfan mánuð í október árið 2013 vegna andstöðu hóps repúblikana við að hækka þakið.

Barack Obama, forveri Trump, gerði samkomulag við þingið árið 2015 um að lyfta skuldaþakinu þar til í mars á þessu ári. Fjármálaráðuneytið notaði neyðarráðstafanir til þess að fresta greiðsluþroti alríkissins þá en lokafrestur til að hækka skuldaþakið rennur út 29. september, að því er segir í frétt Washington Post.

Halli bandaríska alríkissjóðsins er nú talinn verða um 800 milljarðar dollarar þegar fjárlagaárið endar 30. september.

Bandaríkjaþing þarf að samþykkja að hækka þak á skuldsetningu ríkissjóðs til að rekstur alríkisstjórnarinnar geti haldið áfram í lok næsta mánaðar.Vísir/AFP
Hafa ekki ræðst við í nokkrar vikur

Svo vill til að skuldaþaksfresturinn rennur út á sama tíma og þingið þarf að samþykkja ný fjárlög. Trump hefur þegar hótað því að leyfa alríkisstjórninni að stöðvast til þess að knýja fram fjárveitingar til umdeilds landamæramúrs sem hann vill reisa á landamærunum að Mexíkó.

Ryan lýsti því yfir í gær að hann teldi lokun alríkisstjórnarinnar landinu ekki til hagsbóta jafnvel þó að hann teldi landamæramúrinn nauðsynlegan.

Trump hefur troðið illsakir við leiðtoga Repúblikanaflokksins undanfarið, ekki síst McConnell. New York Times sagði frá því fyrr í þessari viku að þeir hafi ekki ræðst við um nokkurra vikna skeið eftir að þeir hreittu ónotum hvor í annan í símtali snemma í ágúst.

Forsetinn hefur ítrekað ráðist á McConnell og fleiri repúblikana í ræðu og í riti á Twitter undanfarnar vikur.


Tengdar fréttir

Kalt stríð sagt ríkja á milli Trump og McConnell

Samband Donald Trump, forseta Bandaríkjanna og Mitch McConnell, leiðtoga Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, er sagt vera komið á það stig að þeir hafi ekki talast við vikum saman




Fleiri fréttir

Sjá meira


×