Viðskipti innlent

Stefna enn ótrauðir að annarri kísilverksmiðju í Helguvík

Haraldur Guðmundsson skrifar
Thorsil fékk lóð í Helguvík skammt frá þeim stað þar sem nú er búið að byggja kísilver United Silicon.
Thorsil fékk lóð í Helguvík skammt frá þeim stað þar sem nú er búið að byggja kísilver United Silicon. vísir/gva
Forsvarsmenn Thorsil gera nú ráð fyrir að framkvæmdir við kísil­málmverksmiðju þeirra í Helguvík hefjist á seinni hluta næsta árs. Þeir hafa engin áform um að koma að rekstri verksmiðju United Silicon á iðnaðarsvæðinu og bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir vandræðin þar á bæ engin áhrif hafa haft á viðræðurnar við Thorsil.  

„Aðalmálið er að það má ekki líkja okkur saman við það sem hefur ekki gengið upp. Þetta hefur því miður ekki verið gert á réttan hátt hjá United Silicon og við höfum átt í reglulegum samskiptum við alla þá sem koma að okkar verkefni og þar með talið Reykjanesbæ og gert þeim grein fyrir stöðu okkar verkefnis,“ segir John Fenger, stjórnarformaður Thorsil.

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði um miðjan júlí kröfu Landverndar, Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands og íbúa í Reykjanesbæ um að ákvörðun Umhverfisstofnunar sem gaf Thorsil starfsleyfi yrði ógilt. Félagið fékk leyfið í september 2015 en það var fellt úr gildi í október í fyrra. Nýtt leyfi fékkst í febrúar en mánuði síðar barst önnur kæra sem nefndin hafnaði svo í sumar.

„Við vorum búnir að loka fjármögnuninni þannig þetta tafði okkur um eitt ár. Eins og líka hefur komið fram í blöðum hafa einhverjir lífeyrissjóðir dregið sig til baka og þá væntanlega vegna United.­ Við erum því að ganga frá því að fylla skarðið og klára fjármögnunina á næstu misserum,“ segir John. Heildarfjármögnun verksmiðjunnar nemur 275 milljónum dala, eða um 30 milljörðum króna, og á framleiðsla hennar nú að hefjast á fyrri hluta 2020.  

„Því miður hefur þetta ekki tekist nógu vel hjá United og verksmiðjan fór í gang of fljótt. Við höfum undirbúið okkar verkefni á allt annan hátt og okkar hugsun er að byggja verksmiðju sem er vel hönnuð þannig að svona óhöpp eigi sér ekki stað,“ segir John og vísar til síendurtekinna mengunaróhappa United Silicon.

„Það hefur ekki orðið nein stefnubreyting hjá Reykjanesbæ varðandi Thorsil. Verkefnið hefur aftur á móti ekki verið rætt lengi enda málið í vinnslu hjá þeim. Við vitum að það eru íbúar sem telja það vera tómt rugl en á meðan bæjarstjórn hefur ekki ákveðið annað vinnur kerfið að framgangi kísilveranna í Helguvík,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. 

Hlutur Arion banka metinn á 900 milljónir króna

Umhverfisstofnun sendi forsvarsmönnum United Silicon bréf á miðvikudag vegna áforma um stöðvun á rekstri verksmiðjunnar þann 10. september eða fyrr fari svo að ljósbogaofn hennar stöðvist enn á ný. Gríðarlegur fjöldi kvartana hafi borist stofnuninni síðan verksmiðjan var gangsett 11. nóvember. Þá hefur komið fram að fyrirtækið hefur fengið heimild til greiðslustöðvunar og að Arion banki hafi lánað því um átta milljarða króna og lífeyrissjóðir lagt því til hundruð milljóna í hlutafé. Bankinn hefur nú fært niður 16,3 prósenta hlut sinn í verksmiðjunni sem var metinn á 900 milljónir króna.

Magnús Garðarsson, fyrrverandi forstjóri verksmiðjunnar og sá sem leiddi verkefnið þangað til hann hætti í stjórn United Silicon í byrjun þessa árs, var á ferðalagi í Svíþjóð í gær þegar blaðamaður náði tali af honum.

„Ég veit ekkert hvað þú ert að tala um. Ég er ekki búinn að kynna mér málið og er í fríi,“ sagði Magnús þegar hann var beðinn um viðbrögð við þeirri stöðu sem komin er upp í rekstri verksmiðjunnar.


Tengdar fréttir

Áforma að slökkva á kísilverksmiðjunni

Verði ekki ráðist í úrbætur á verksmiðju United Silicon verður slökkt á henni í upphafi næsta mánaðar. Umhverfisstofnun sendi bréf þess efnis til fyrirtækisins í gærkvöldi.

Vandamál United Silicon víðtækara en við blasti

Umhverfisstofnun áformar að stöðva starfsemi United Silicon öðru sinni komist rekstur kísilversins ekki í eðlilegt horf. Forsvarsmönnum verksmiðjunnar var tilkynnt um ákvörðun stofnunarinnar með bréfi í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×