Lífið

Freydís Björg er mætt fyrir utan H&M og ætlar að bíða í sólarhring í röðinni

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Eins og sjá má á niðurtalningunni fyrir aftan Freydísi er enn tæpur sólahringur í opnun H&M.
Eins og sjá má á niðurtalningunni fyrir aftan Freydísi er enn tæpur sólahringur í opnun H&M. Vísir/Sylvía Rut
„Ég mætti þegar það var einn sólahringur og 22 mínútur í opnun,“ segir Freydís Björg Óttarsdóttir en hún situr á rauða dreglinum fyrir utan H&M í Smáralind. Freydís var sú fyrsta til þess að mæta en búist er við langri röð þegar verslunin opnar á hádegi á morgun.

„Ég elska H&M. Alltaf þegar ég fer til útlanda þá versla ég geðveikt mikið,“ segir Freydís í samtali við Vísi um ástæðu þess að hún sé mætt svona snemma að bíða fyrir utan verslunina. Hún segist ekki vera búin að ákveða hvað hún ætli að kaupa og er ótrúlega spennt að sjá verslunina.

„Ég ætla bara að versla fyrir gjafabréfið mitt og sjá svo til.“

H&M hafði auglýst að fyrsti viðskiptavinurinn í röðinni fær 25.000 króna gjafabréf í verslunina.

Fær að fara fimm sinnum á salernið

Hún hefur ekki áhyggjur af því að geta ekki borðað eða að þurfa að fara á salernið. „Vinkona mín ætlar að koma og færa mér mat. Svo get ég fimm sinnum fengið svona pásupassa, þá má ég fara á salernið og ef ég verð komin aftur til baka eftir 20 mínútur þá má ég fara aftur á minn stað í röðinni. Öryggisverðir sjá um þetta.“

Freydís segir að H&M sé biðarinnar virðiVísir/Sylvía Rut
Freydís græðir 25.000 krónur á því að bíða í rúmar 24 klukkustundir í röð en henni finnst það algjörlega þess virði.

„Ég er nemi í hárgreiðslu og er ekki í skólanum á föstudögum og var ekki að vinna í dag. Ég er með opið Snapchat með notendanafnið frella00 og hef sýnt á Snapchat að ég er mætt. Fólk hefur miklar áhyggjur af því að ég nái ekki að borða eða fara á salernið. Ég er búin að fá sendar ótrúlega margar spurningar.“

Freydís mætti með símann sinn og heyrnatól svo að hún hefði einhverja afþreyingu á meðan hún bíður. 

„Ég átti alls ekki von á því að vera fyrst,“ segir Freydís en hún hafði beðið ein í rúma klukkustund þegar blaðamaður hitti hana

„H&M er uppáhalds búðin mín svo þetta er bara gaman.“

H&M





Fleiri fréttir

Sjá meira


×