Íslenski boltinn

HK komst upp að hlið Hauka

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
HK-ingar voru öflugir í Kórnum í kvöld.
HK-ingar voru öflugir í Kórnum í kvöld. vísir/anton
HK stökk upp í fimmta sætið í Inkasso-deildinni í kvöld með góðum 2-0 sigri á Haukum.

Bjarni Gunnarsson og Reynir Már Sveinsson skoruðu mörk HK í kvöld. Bjarni klúðraði þess utan vítaspyrnu í leiknum.

HK er nú með 30 stig rétt eins og Haukar en Hafnirðingarnir eru með betra markahlutfall.  Bæði lið eru aðeins þrem stigum á eftir liðunum í sætum tvö og þrjú í deildinni.

Fylkir er í öðru sæti og er að spila núna. Með sigri verða Fylkismenn aðeins stigi á eftir toppliði Keflavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×