Formúla 1

Sebastian Vettel framlengir við Ferrari til 2020

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Vettel verður áfram hjá Ferrari næstu þrjú árin.
Vettel verður áfram hjá Ferrari næstu þrjú árin. Vísir/Getty
Sebastian Vettel mun aka fyrir Ferrari næstu þrjú árin. Tilkynning um samninginn var gefin út í Belgíu þar sem fyrsti kappasturinn eftir sumarfrí fer fram um helgina.

Þessi tilkynning kemur til með að róa ökumannamarkaðinn, líklegast verður óbreytt staða í þremur efstu liðunum; Mercedes, Ferrari og Red Bull. Kimi Raikkonen verður liðsfélagi Vettel á næsta ári.

Sjá einnig: Kimi Raikkonen áfram hjá Ferrari 2018

Bæði Max Verstappen og Daniel Ricciardo, ökumenn Red Bull hafa líklegast alveg viljað næla í sæti hjá Ferrari en það er ljóst að ekki verður úr því alveg strax. Þeir verða því líklegast báðir hjá Red Bull á næsta ári.

Mercedes liðið segist ekki hafa rætt nema stuttlega við Vettel um að taka sæti hjá liðinu.

„Við ræddum stuttlega við hann einu sinni. En eftir því sem Ferrari bíllinn varð betri því minna langaði hann að yfirgefa liðið,“ sagði Nikil Lauda í samtali við Sky Sports F1.

Nú þegar náin framtíð Vettel er ráðin er nánast öruggt að Mercedes mun framlengja við Valtteri Bottas.


Tengdar fréttir

Valtteri Bottas í toppformi hjá Mercedes

Valtteri Bottas segist vera kominn í toppform aftur eftir vistaskiptin til Mercedes í upphafi árs. Hann segist vera búinn að koma sér fyrir hjá Mercedes eftir að hann kom frá Williams.

Kimi Raikkonen áfram hjá Ferrari 2018

Ferrari liðið í Formúlu 1 hefur staðfest í tilkynningu að finnski ökumaðurinn Kimi Raikkonen verði áfram hjá liðinu á næsta tímabili.

Raikkonen og Hamilton fljótastir á æfingum í Belgíu

Kimi Raikkonen á Ferrari var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir belgíska kappaksturinn í Formúlu 1 sem fram fer um helgina á Spa brautinni. Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur á seinni æfingunni.

Sonur Michael Schumacher keyrir gamla bíl pabba síns

Táningssonur Michaels Schumacher verður sviðsljósinu um helgina þegar formúlan fer fram í Belgíu. Ástæðan er að hann mun þá hjálpa til að minnast 25 ára afmælis fyrsta sigurs föður síns með sérstökum hætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×