Glamour

Stórir hattar og áberandi sólgleraugu í nýju myndbandi Marc Jacobs

Ritstjórn skrifar
Frá sýningu Marc Jacobs í New York í Febrúar 2017
Frá sýningu Marc Jacobs í New York í Febrúar 2017 Glamour/Getty
Marc Jacobs hefur gefið út herferðarmyndband við haust- og vetrarlínu sína. Sýningin fékk mikla góða athygli og var hún nokkuð frábrugðin öðrum, en Marc var augljósa undir áhrifum hip-hop senunnar á tíunda áratugnum, en einnig svipaði mikils til sjöunda áratugsins. 

Myndbandið er leikstýrt af Jesse Jenkins, og er skemmtilegur gamaldags bragur yfir myndbandinu. Ákveðnar konur sem eru alveg sama um hvað öðrum finnst, er nokkurn veginn tilfinningin sem maður fær þegar maður horfir á myndbandið.

Hattarnir og sólgleraugun eru áberandi í línunni. Ætli þessi hattur verði aðalmálið í vetur? 






×