Glamour

Taylor Swift í íslenskri hönnun í nýjasta myndbandinu sínu

Ritstjórn skrifar
Skjáskot/Instagram
Taylor Swift klæðist fylgihlutum frá Hildi Yeoman í nýjasta myndbandinu sínu en stílisti myndbandsins var hin íslenska Edda Guðmunds. 

Það hefur varla farið framhjá neinum sem fylgist með dægurmálafréttum að bandaríska stórstjarnan og kántrísöngkonan Taylor Swift er að gefa út nýja plötu, Reputation sem á að koma út síðar í haust. Fyrsta lagið af plötunni kom hinsvegar út fyrir helgi, Look What You Made Me Do, með splunkunýju myndbandi sem hefur vakið mikla athygli. 

Það er óhætt að segja að myndbandið sé því með örlitlu íslensku ívafi en það var Hildur Yeoman sjálf sem vakti athygli á því þessu á Instagram síðu sinni. Vel gert báðar tvær!

Gaman að sjá en við mælum með að horfa á myndbandið þar sem stíliseringin leikur stórt hlutverk!

Edda Guðmundsdóttir, stílisti.Noel Mcgrath





×