Leikjavísir

Tuddinn í beinni: 300 manns keppa í sex tölvuleikjum

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá Tuddanum í fyrra.
Frá Tuddanum í fyrra.
Tuddinn, stærsta tölvuleikjamót ársins, fer fram í Háskólanum í Reykjavík um helgina. Tæplega 300 keppendur eru skráðir til leiks og verður keppt í sex leikjum yfir þrjá daga. Mótið er haldið á vegum nemendafélagsins Tvíund og tölvuleikjafélagsins Tuddinn. Verðmæti verðlauna er rúmar 700 þúsund krónur.

Mikil áhersla er lögð á áhorfendasvæði í húsnæðinu þar sem fólk getur fylgst með á stórum skjá. Einnig verður hægt að horfa á mótið á Twitch og hér á Vísi.

„Rafrænar íþróttir (eSports) hafa verið í miklum vexti um allan heim en eSports er samheiti yfir viðburði þar sem keppt er í ýmsum tölvuleikjum. Stærstu mótin sem haldin eru draga til sín þúsundir gesta víðsvegar um heim og fylgjast milljónir manna með stærstu viðburðum í gegnum streymisveitur á netinu. Vinsælustu leikirnir á Íslandi eru meðal annars Counter-Strike, League of Legends og Overwatch en keppt verður í þeim öllum um helgina.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsvarsmönnum mótsins.

Uppfært: Einhverjar tafir hafa orðið á keppninni og hefur útsending ekki farið af stað. Verið er að reyna að koma henni í gang, en til stendur að streyma frá keppni í League of Legends í kvöld. 

Dagskráum helgina er eftirfarandi:

Föstudagur: Húsið opnar 16.00 - riðlakeppni hefst í öllum leikjum 19.00

Laugardagur: Útsláttarkeppni hefst í öllum leikjum. 2v2 FIFA mót í M.101 og Mountain Dew Keppni.

Sunnudagur: Úrslitaleikir hefjast.

Watch live video from gegttv on www.twitch.tv





Fleiri fréttir

Sjá meira


×