Sport

Bolt fékk sér í glas nokkrum dögum fyrir lokahlaupið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bolt er mikill stuðpinni. Elskar ljúfa lífið.
Bolt er mikill stuðpinni. Elskar ljúfa lífið. vísir/getty
Svo virðist vera sem fljótasti maður allra tíma, Usain Bolt, hafi ekki hagað undirbúningi sínum fyrir lokahlaup ferilsins af mikilli skynsemi.

Breska slúðurblaðið The Sun komst yfir myndir og myndbönd af Bolt að skemmta sér fram á morgun nokkrum dögum áður en lokahlaup hans fór fram.

Samkvæmt heimildum blaðsins þá drakk Bolt bæði romm og koníak í miklu teiti sem stóð fram á morgun.

Teitið var haldið til þess að minnast góðvinar Bolt, Germaine Mason, sem lést í mótorhjólaslysi í apríl. Bolt bar líkkistu hans í jarðarförinni og var með þeim fyrstu sem kom að honum eftir slysið.

Það vita allir hvernig lokahlaupið fór en Bolt meiddist í lokasprettinum og lauk ferli sínum í sárum á hlaupabrautinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×