Viðskipti innlent

Marinó Örn Tryggvason nýr aðstoðarforstjóri Kviku

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Marinó Örn Tryggvason
Marinó Örn Tryggvason Kvika
Marinó Örn Tryggvason hefur hafið störf sem aðstoðarforstjóri Kviku. Áður starfaði Marinó í eignastýringu Arion banka og forvera bankans frá árinu 2002. Síðast starfaði Marinó sem aðstoðarframkvæmdastjóri eignastýringar Arion frá árinu 2014 og fyrir þann tíma var hann forstöðumaður eignastýringar fagfjárfesta frá 2007.

Að auki mun Marinó sinna hlutverki framkvæmdastjóra eignastýringar Kviku þar til fyrirhugaður samruni Kviku og Virðingar hefur gengið í gegn. Gangi áætlanir um samruna eftir mun Hannes Frímann Hrólfsson taka við starfi framkvmdastjóra eignastýringar.

Hannes hefur starfað á fjármálamarkaði í hátt í 20 ár. Hann hefur verið forstjóri Virðingar frá 2014 en áður starfaði hann hjá Auði Capital frá 2012, lengst af sem forstjóri. Fyrir þann tíma starfaði Hannes hjá Arion banka og forvera bankans og var framkvæmdastjóri og meðstofnandi Tinda verðbréfa.

Kvika undirritaði nýverið samninga um kaup á öllu hlutafé í Virðingu hf. og Öldu sjóðum hf. og eru kaupin nú til umfjöllunar hjá eftirlitsstofnunum. Með kaupunum á Virðingu og Öldu verður Kvika einn umsvifamesti aðili í eignastýringu á Íslandi með um 280 milljarða króna í stýringu.


Tengdar fréttir

Hlutafé Kviku verður aukið um allt að tvo milljarða

Hlutafé Kviku verður aukið um 1.500 til 2.000 milljónir króna til að fjármagna kaupin á Virðingu en hluthafar verðbréfafyrirtækisins samþykktu kauptilboð bankans með miklum meirihluta í lok síðasta mánaðar.

Ármann Þorvaldsson hættur í Virðingu og verður nýr forstjóri Kviku banka

Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Kaupþings Singer & Friedlander í Bretlandi, mun taka við Sigurði Atla Jónssyni sem forstjóri Kviku fjárfestingabanka, samkvæmt heimildum Vísis. Greint var frá því fyrr í dag að Sigurður Atli hefði tilkynnt stjórn bankans að hann hefði ákveðið að láta af störfum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×