Enski boltinn

Klopp um fyrsta skiptið sitt: Vonandi stöndum við okkur betur í kvöld en ég gerði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool. Vísir/Getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, er mættur til heimalandsins síns Þýskalands þar sem Liverpool mun í kvöld spila fyrri leikinn sinn á móti Hoffenheim í umspili um sæti í Meistaradeildinni.

Liverpool gerði vel í að tryggja sér fjórða sætið í ensku úrvalsdeildinni en þarf að slá út Hoffenheim til að komast í Meistaradeildina í vetur.

Klopp var alveg tilbúinn að slá á létta strengi á blaðamannafundi fyrir leikinn og það var einkum eitt svar sem vakti mikla kátínu meðal fjölmarga blaðamanna sem voru mættir til að spyrja hann spjörunum úr.

Blaðamaður FourFourTwo sagði  síðan frá þessu spaugilega atviki inn á Twitter:







Fréttamaður: Herra Klopp, manstu þú eftir fyrsta skiptinu þínu? (Hún var að meina fyrsta leikinn í Meistaradeildinni en nefndi það ekki).

Klopp: (Hissa en með glotti) Manstu þú eftir þínu fyrsta skipti? Auðvitað man ég eftir því en vanalega er ég ekki að tala opinberlega um fyrsta skiptið mitt en ég vona samt að við stöndum okkur betur á morgun en ég gerði.

Leikur Hoffenheim og Liverpool hefst klukkan 18.45 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Jürgen Klopp talar við fjölmiðlamenn.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×