Innlent

Ekki hægt að útiloka nóróveirusmit fyrr á Úlfljótsvatni

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Einn af skálunum við Úlfljótsvatn í dag sem var þrifinn um helgina.
Einn af skálunum við Úlfljótsvatn í dag sem var þrifinn um helgina. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson

Ekki er útilokað að fyrstu tilfelli nóróveirunnar, sem hefur lagst á skáta við Úlfljótsvatn að undanförnu, hafi komið upp á alþjóðlega skátamótinu sem haldið var þar um síðustu mánaðamót. Tíu ný veirusmit komu upp á svæðinu í gærkvöldi og í nótt og voru þeir veiku settir í einangrun á staðnum.



Níu skátar og einn starfsmaður á Útilífsmiðstöðinni hér við Úlfljótsvatn smituðust af veirunni í gærkvöldi og í nótt. Þeim var öllum komið fyrir í einangrun en eru allir að koma til.



Tilfellin sem komu upp í gærkvöldi og í nótt eru hjá skátum sem dvöldu í fjöldahjálparstöðinni í Hveragerði um síðustu helgi en höfði ekki verið með einkenni veirunnar þá. Sé smit til staðar getur það tekið 24-48 klukkustundir fyrir einkennin að koma fram og ganga veikindin nokkuð hratt yfir.



„Einkennin eru þau sömu og lítur eins út þegar þetta er að gerast. Dreifist áþekkt og þess háttar,“ segir Elín Esther Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Útilífsmiðstöðvar skáta við Úlfljótsvatn.



Í heildina hafa á níunda tug skáta smitast af veirunni frá því hún kom upp fyrir helgi og þá hafa þrír starfsmenn á Úlfljótsvatni einnig greinst með smit.



„Þetta smit núna einangrast alveg við þann hóp,“ segir Elín Esther.



Sérstakt teymi hefur lokið við að sótthreinsa fjöldahjálparstöðina sem opnuð var í grunnskólanum í Hveragerði fyrir helgi en hópur sjálfboðaliða sá um þrif á Úlfljótsvatni um helgina. Eftir að nýju tilfellin komu upp í gær og í nótt þarf að sótthreinsa þar aftur en mikill kostnaður skapast við þrifin og svo getur farið að loka þurfi Útilífsmiðstöðinni á Úlfljótsvatni í allt að þrjár vikur en það er talinn líftími veirunnar sem herjað hefur á svæðinu. Upptökin hafa enn ekki fundist.



„Frá okkar bæjardyrum og svona það sem við höfum hlerað óformlega þá lýtur allt út fyrir að sé komið á staðinn frekar en að þetta hafi verið á staðnum og nær svo bara að breiðast út í margmenninu,“ segir Elín Esther.



Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að tíu einstaklingar hafi veikst á sama tíma þegar alþjóðlegt skátamót var haldið á Úlfljótsvatni um mánaðamótin. Einkenni þeirra voru svipuð eða þau sömu og komu upp hjá skátunum í síðustu viku og í gærkvöldi og í nótt. Þá voru þeir allir settir í einangrun á staðnum.



„Það kemur upp áþekkt mál á skátamótinu. Samkvæmt þeim heilbrigðisstarfsmönnum sem við höfum talað við núna síðustu daga þá er talað um að þetta séu óskyld mál,“ segir Elín Esther.



Það sé hins vegar ekki hægt að staðfesta. Læknir ásamt öðru heilbrigðisstarfsfólki var við störf á mótinu lagði mat á að ekki væri um smitandi veiru sýkingu að ræða og voru engin sýni voru tekin og málin ekki tilkynnt þegar þau komu upp. 

 


Tengdar fréttir

Fimm skátar enn þá veikir

Flestir skátar og foringjar þeirra hafa verið útskrifaðir úr sóttkví í fjöldahjálpastöðinni í Hveragerði. Átta voru eftir í húsinu í dag og þar af voru fimm ennþá veikir. Halda þarf stöðinni opinni að minnsta kosti til morguns.

Hægt að loka fjöldahjálparstöðinni í dag

Aðeins fimm af 181 skáta sem veiktist af nórósýkingu í fyrrinótt eru enn með einkenni. Svæðisfulltrúi Rauða krossins á Suðurlandi segist gera ráð fyrir að hægt verði að loka fjöldahjálparstöðinni í Hveragerði í dag.

Furðu brött þrátt fyrir allt

Umfangsmestu sjúkraflutningar í sögu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands fóru fram í fyrrinótt. Vel á annað hundrað manns voru fluttir vegna bráðsmitandi nóróveirusýkingar. Flestir hinna veiku á batavegi og furðu brattir að sögn. Heilbrig

Allir skátar á batavegi

Langflestir munu væntanlega útskrifast af fjöldahjálparstöðinni í kvöld eða á morgun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×