Erlent

Downs-heilkennið á Ís­landi: Segir ekki verið að eyða heilkenninu heldur drepa börn

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ted Cruz, þingmaður Repúblikanaflokksins, og leikkonan Patricia Heaton gagnrýndu stöðu Downs-heilkennisins á Íslandi harðlega.
Ted Cruz, þingmaður Repúblikanaflokksins, og leikkonan Patricia Heaton gagnrýndu stöðu Downs-heilkennisins á Íslandi harðlega. Vísir/Getty

Umfjöllun bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CBS um Downs-heilkennið á Íslandi, sem birt var í gærkvöldi, hefur vakið mikla athygli. Nær engin börn fæðast lengur með heilkennið á Íslandi vegna tíðra prófana fyrir litningagalla sem veldur því.



Ted Cruz, þingmaður Repúblikanaflokksins og fyrrverandi frambjóðandi í síðustu forsetakosningum, og bandaríska leikkonan Patricia Heaton gagnrýndu stöðu heilkennisins á Íslandi harðlega í dag í kjölfar umfjöllunarinnar.



Heilkennið smám saman að hverfa

Nær allar þungaðar, íslenskar konur, sem fá jákvæðar niðurstöður þegar prófað er fyrir Downs-heilkenni, láta eyða fóstrinu, að því er fram kemur í umfjöllun CBS um málið. Heilkennið er því smám saman að hverfa á Íslandi.



Þessi próf eru valkvæð en samkvæmt lögum verður þó að gera öllum verðandi mæðrum á Íslandi ljóst að þau séu í boði. Í kringum 80 til 85 prósent íslenskra kvenna láta prófa fyrir litningagallanum sem veldur Downs-heilkenni.



Þá kemur enn fremur fram í umfjölluninni að þróun í þessa átt sé sambærileg í öðrum löndum. Árin 1995-2011 völdu 67 prósent bandarískra kvenna að láta eyða fóstrum með Downs-heilkenni, 77 prósent franskra kvenna og 98 prósent danskra.



Tvö börn með Downs-heilkenni fæðast á ári á Íslandi

Börn með Downs-heilkenni fæðast þó enn á Íslandi, þrátt fyrir að nær allar konur láti prófa fyrir litningagallanum, en hann finnst ekki í öllum tilvikum. CBS ræddi við Þórdísi Ingadóttur, móður hinnar sjö ára Ágústu, en dóttir hennar fæddist með Downs-heilkenni þrátt fyrir að Þórdís hafi látið prófa fyrir því.



Þórdís sagði í samtali við CBS að árið 2010, fæðingarár Ágústu, hefðu þrjú börn fæðst með Downs-heilkenni á Íslandi.



„Það er nokkuð meira en venjulega. Venjulega eru það tvö, síðustu nokkur ár.“

Íslendingar að „drepa“ en ekki eyða

Í kjölfar umfjöllunar CBS um stöðu Downs-heilkennis á Íslandi tjáði einn áhrifamesti þingmaður Repúblikana, Ted Cruz, sig um málið á Twitter-síðu sinni. Hann segir að börn með heilkennið ætti að varðveita en ekki eyða.

„Svo sannarlega sorglegt. Fréttir upphefja „100 prósent fóstureyðingartíðni“ barna með Downs-heilkenni á Íslandi. Börn með Downs-heilkenni ætti að varðveita en ekki eyða“ ritar Cruz. Í fyrra laut Cruz í lægra haldi fyrir Bandaríkjaforseta, Donald Trump, í forvali Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.



Leikkonan Patricia Heaton, sem þekktust er fyrir hlutverk sitt sem Debra Barone í þáttunum Everybody Loves Raymond, segir Íslendinga beinlínis vera að drepa þá sem hafa Downs-heilkennið.

„Ísland er í raun ekki að eyða Downs-heilkenni. Þau eru bara að drepa alla sem að eru með það. Mikill munur,“ skrifar Heaton.



Heaton hefur um langt skeið verið andstæðingur fóstureyðinga og hefur enn fremur verið hávær í þeirri afstöðu sinni. Hún er einnig skráð í Repúblikanaflokkinn og á heiðurssæti í samtökunum Feminists for Life sem beita sér gegn fóstureyðingum og stofnfrumurannsóknum. Í kjölfar tístsins hefur hún keppst við að deila myndum af börnum með Downs-heilkenni sem foreldrar hafa sent henni.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem farið er til Íslands vegna stöðu Downs-heilkennisins í heiminum. Í heimildarmynd bresku leikkonunnar Sally Phillips, A World Without Down‘s Syndrome? eða Heimur án Downs-heilkennis?, heimsótti hún bæði Landspítalann og ræddi við Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, um háa tíðni þungunarrofs á fóstrum með Downs-heilkenni, líkt og gert var í umfjöllun CBS.



Phillips á sjálf son með Downs-heilkenni en heimildarmyndin hlaut mikið lof. Einhverjir gagnrýnendur sögðu myndina þó of persónulega og að hægt væri að lesa úr henni að þeir, sem valið hefðu að fara í fóstureyðingu vegna Downs-heilkennis í fóstri, hefðu tekið ranga ákvörðun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×