Erlent

Neyðarskilaboðum óvart úvarpað á Gvam

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Lífið á bandarísku eyjunni Gvam gengur sinn vanagang þrátt fyrir hótanir stjórnvalda í Norður-Kóreu og neyðarútsendingar útvarpsstöðva.
Lífið á bandarísku eyjunni Gvam gengur sinn vanagang þrátt fyrir hótanir stjórnvalda í Norður-Kóreu og neyðarútsendingar útvarpsstöðva. vísir/afp
Íbúum bandarísku eyjunnar Gvam brá væntanlega þegar tvær útvarpsstöðvar á eyjunni útvörpuðu neyðarskilaboðum vegna yfirvofandi árásar norðurkóreska hersins. Stöðvarnar tvær útvörpuðu korterslöngum skilaboðum aðfaranótt gærdagsins, en slíkum skilaboðum er einungis útvarpað þegar íbúar eru í bráðri hættu.

Útsendingin reyndist hins vegar óþörf og gátu Gvambúar andað léttar þegar varnarmálayfirvöld í Gvam tilkynntu að um óheimilaða æfingu hafi verið að ræða. „Hin óheimilaða æfing var ekki tengd nokkurri neyð, ógn eða hættu,“ sagði í yfirlýsingu yfirvalda. Þá sagði jafnframt í henni að yfirvöld hefðu haft samband við umræddar stöðvar til að tryggja að slík mannleg mistök endurtaki sig ekki.

Norður-Kóreumenn greindu frá því í síðustu viku að þeir hygðust gera árás á Gvam vegna þvingana sem Sameinuðu þjóðirnar samþykktu að beita einræðisríkið. Í gær greindi ríkissjónvarpið KCNA frá því að Kim Jong-un einræðisherra væri búinn að fara yfir áætlun hersins en hann hafi hins vegar ákveðið að bíða með árásina.

Greinir BBC frá því að þrátt fyrir að Norður-Kórea sé tilbúin til þess að „umlykja Gvam eldi“ muni yfirvöld bíða og fylgjast með því hvað „hinir heimsku Kanar“ geri áður en endanleg ákvörðun er tekin.

George Charfauros, yfirmaður varnarmála á Gvam, hvatti Gvambúa til þess að sýna stillingu þótt fjölmiðlar greindu frá því að árásar­áætlun liggi fyrir. „Munið að viðbúnaðarstig hefur ekkert breyst. Við munum halda áfram eins og ekkert hafi í skorist og við vitum að varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna er vel undirbúið,“ sagði Charfauros.

Þá segir jafnframt í umfjöllun BBC að greiningaraðilar telji að með þessu sé Kim að kaupa sér tíma, norðurkóreski herinn sé í raun ekki nógu vel undirbúinn undir slíka árás.

Því hefur einnig verið haldið fram að yfirvöld í Norður-Kóreu hræðist það hvernig Bandaríkin myndu svara slíkri árás. Áður en KCNA birti frétt sína sagði James Mattis, varnar­málaráðherra Bandaríkjanna, að árás gæti fljótt leitt til þess að stríð brjótist út. Sagði Mattis að ef Norður-Kóreumenn réðust á Gvam myndu „leikarnir hefjast“. Þá sagði Mattis jafnframt að bandaríski herinn myndi verja land sitt fyrir hvaða árás sem er, hvenær sem er og frá hverjum sem er.

Mattis fullvissaði einnig Gvambúa um að yrði eldflaug skotið í átt að eyjunni myndi bandaríski herinn skjóta eldflaugina niður.

Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu, réð Bandaríkjamönnum frá því í gær að svara mögulegum árásum án samráðs við Suður-Kóreu. „Enginn einn aðili má ákveða að grípa til hernaðaraðgerða án samþykkis okkar,“ sagði Moon. Vísaði hann þar með til varnarmálasamkomulags Bandaríkjanna og Suður-Kóreu en í því segir að ákveða verði í sameiningu hvernig beri að svara þegar öryggi annars hvors ríkisins er ógnað. 


Tengdar fréttir

Trump áfram hofmóðugur gagnvart Norður-Kóreu

Hótanir sem ganga á milli Norður-Kóreu og Donalds Trump Bandaríkjaforseta stigmagnast. Nú tístir forsetinn að hernaðarlausnir séu tilbúnar ef Norður-Kóreumenn hegða sér ekki skynsamlega.

Norður-Kóreumenn tilbúnir í eldflaugaárás á Gvam von bráðar

Her Norður-Kóreu er sagður leggja lokahönd á áætlun um að skjóta eldflaugum að Gvam. Ríkisfjölmiðlar einræðisríkisins segja Donald Trump Bandaríkjaforseta of „skyni skroppinn“ til að hægt sé að eiga viðræður við hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×