Bíó og sjónvarp

Daniel Craig leikur Bond einu sinni enn

Samúel Karl Ólason skrifar
Daniel Craig.
Daniel Craig. Vísir/Getty
Leikarinn Daniel Craig hefur staðfest að hann muni leika ofurnjósnarann James Bond einu sinni enn. Þetta verður í fimmta sinn sem Craig fer í hlutverk njósnarans en næsta mynd um Bond verður númer 25.

Craig var gestur Stephen Colbert í gærkvöldi en nokkrum klukkustundum áður sagðist hann ekki viss um hvort hann tæki að sér hlutverkið. Þó sagði hann að þetta hefði legið fyrir í nokkra mánuði.

Hann sagði þó að þetta yrði í síðasta sinn.

Þá var leikarinn spurður út í gömul ummæli sín um að hann myndi frekar skera sig á púls heldur en að taka að sér hlutverkið aftur.

Hann sagði að hann hefði verið nýbúinn að ljúka við tökur á Spectre. Hann hefði verið þreyttur og svar hans hefði verið heimskulegt.

Craig segir einnig frá því hvernig það kom til að hann lék Stormsveitarmann í Star Wars: The Force Awakens.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×