Innlent

TAKK #SAS: Íslendingar féllu í hrönnum fyrir Facebook-svindli

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Áður en ljóst var að um gabb væri að ræða deildu Íslendingar könnuninni í hrönnum, vongóðir um að geta skellt sér í frí með SAS.
Áður en ljóst var að um gabb væri að ræða deildu Íslendingar könnuninni í hrönnum, vongóðir um að geta skellt sér í frí með SAS. Vísir/Skjáskot
Facebook-svindl, þar sem notendum var boðið að taka þátt í könnun á vegum flugfélagsins SAS í von um að vinna flugmiða, fór eins og eldur í sinu um vefinn í gær. Íslendingar deildu könnuninni í hrönnum en SAS sendi frá sér sérstaka yfirlýsingu um málið þar sem ítrekað var að um gabb væri að ræða.

Facebook-notendum var boðið að taka þátt í könnun á starfsemi flugfélagsins SAS. Þegar svörin höfðu verið „send til SAS“ og „greind“ var notandanum tilkynnt um að hann hefði unnið tvo flugmiða með flugfélaginu. Til þess að innheimta miðana þurfti að því búnu að deila könnuninni á Facebook og skrifa Takk #SAS við deilinguna en öll umgjörð þótti nokkuð sannfærandi.

Þá virðist sambærilegt svindl, sem gert er út fyrir að vera á vegum norska lággjaldaflugfélagsins Norwegian, einnig vera í gangi. 

Fyrirtæki notast gjarnan við gjafaleiki af þessu tagi til að auka við fylgjendafjölda sinn á samfélagsmiðlum og vekja athygli á vörumerki sínu. Oft getur verið erfitt að greina á milli leikja, sem bjóða upp á raunveruleg verðlaun, og leikja sem eru aðeins til þess gerðir að villa um fyrir notendum.

Notendum var tilkynnt um að þeir hefðu unnið tvo flugmiða að lokinni könnuninni. Miðarnir voru þó skilyrðum háðir.Skjáskot
Fjölmargir hugsuðu sér gott til glóðarinnar

Áður en ljóst var að um gabb væri að ræða deildu Íslendingar könnuninni í hrönnum, vongóðir um að geta skellt sér í frí með SAS.

Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins, deildi til að mynda umbeðnu myllumerki, Takk #SAS, á Facebook-síðu sinni. Honum var þó fljótlega bent á að könnunin væri svindl.

Skarphéðni var fljótlega bent á að um svindl væri að ræða.Skjáskot
Þá deildu Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, Vigdís Hauksdóttir, fyrrverandi þingkona Framsóknarflokksins, og Sigríður Björg Tómasdóttir, upplýsingafulltrúi Kópavogs, könnuninni í von um að vinna flugmiða - auk fjölmargra annarra.

Þórður Snær Júlíusson sá sér gott til góðarinnar.Skjáskot
Vigdís Hauksdóttir lét einnig freistast.Skjáskot
Þá var Sigríður Björg Tómasdóttir í ferðastuði.Skjáskot
Flugfélagið SAS, skandinavískt flugfélag sem Íslendingar hafa löngum ferðast með, sendi frá sér yfirlýsingu í gærmorgun og ítrekaði að könnunin væri ekki á vegum félagsins og ekki stæði til að útdeila ókeypis flugmiðum. Þá voru Facebook-notendur vinsamlegast beðnir um að hætta að deila og taka þátt í könnuninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×