Stefna að langtímasamningi um aukin fjárframlög til Hugarafls Kristín Ólafsdóttir skrifar 17. ágúst 2017 12:30
Stefnt er að gerð langtímasamnings um aukin framlög til Hugarafls til að styrkja starf samtakanna í þágu fólks með geðraskanir. Þetta var niðurstaða fundar sem félags- og jafnréttismálaráðherra og forsvarsmenn Hugarafls áttu í morgun, að því er fram kemur í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu. Stjórnarmenn Hugarafls, Auður Axelsdóttir, Sigurborg Sveinsdóttir og Árni Steingrímsson, sátu fundinn í dag, auk Halldórs Más Sæmundssonar aðstandanda. Frá ráðuneytinu voru viðstaddir, auk félags- og jafnréttismálaráðherra, aðstoðarmenn hans og aðstoðarmenn heilbrigðisráðherra. „Á fundinum var farið yfir þá vinnu sem farið hefur fram í ráðuneytinu að undanförnu, sameiginlega af hálfu heilbrigðis- og félagshluta þess, til að greina stöðu Hugarafls og finna leiðir til að styðja við félagið þannig að það nýtist sem best fólki með geðræn vandamál,“ að því er segir í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu. Þá lýsti ráðherra yfir vilja sínum til að efla starf Hugarafls, einkum virkni og endurhæfingarúrræði samtakanna en í tilkynningun segir að þau hafi reynst vel fjölda fólks sem glímt hefur við geðraskanir af ýmsum toga. „Hugarafl hefur unnið mikilvægt brautryðjandastarf og um árangurinn af starfi samtakanna verður ekki deilt. Það er mikilvægt að starfsemin nái að þróast áfram og eflast og það erum við sammála um að takist best með vönduðum langtímasamningi um starfsemina þar sem fjallað er um markmið og árangursmælingar“ sagði Þorsteinn Víglundsson meðal annars á fundinum,“ sagði Þorsteinn Víglundsson, velferðar- og jafnréttismálaráðherra, meðal annars á fundinum að því er fram kemur í tilkynningu.Binda vonir við að niðurstaða náist fljótt til að eyða óvissu Samtökin Hugarafl stóðu fyrir mótmælum við velferðarráðuneytið í byrjun apríl vegna þeirrar fjárveitingar sem samtökunum var ætluð á þessu ári. Alls nam fjárhæðin 1,5 milljónum króna sem forsvarsmenn Hugarafls töldu alltof lítið. Í kjölfar mótmælanna í apríl sagði aðstoðarmaður félagsmálaráðherra að ekki væri hægt að lofa samtökunum meiri fjárveitingar eins og staðan var þá. Auður Axelsdóttir, forstöðumaður Hugarafls, sagðist á fundinum í dag vera ánægð með þá stefnu sem málefni Hugarafls hafi tekið. Þá sagði hún gerð langtímasamninga æskilega niðurstöðu og að hún treysti því að farsæl lausn náist fljótt sem tryggi starfsemi Hugarafls á næstu mánuðum. „Við finnum að það er fullur skilningur á því hvað starfsemi Hugarafls er mikilvæg í íslensku samfélagi og erum afar ánægð með þá viðurkenningu,“ sagði Auður meðal annars. Undir þetta tóku aðrir fulltrúar Hugarafls á fundinum og sögðust hafa miklar væntingar til þeirrar vinnu sem framundan er við gerð langtímasamnings. Þá binda þeir einnig vonir við að niðurstaða náist fljótt til að eyða óvissu.Styrkir nema samtals 18,6 milljónum krónaÍ tilkynningu velferðarráðuneytisins segir enn fremur að Hugarafl hafi frá árinu 2011 notið styrkja frá velferðarráðuneytinu sem nema samtals 18,6 milljónum króna, að mestu frá heilbrigðishluta ráðuneytisins. Samtökin hafi einnig fengið 5 milljóna króna styrk frá fjárlaganefnd Alþingis árið 2016. Auk þessa sé í gildi samningur milli Hugarafls og Vinnumálastofnunar sem kveður á um þjónustukaup stofnunarinnar af Hugarafli fyrir 10 milljónir króna árlega. Fyrr í þessum mánuði kröfðust Ungir Píratar þess að Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherra, og Þorsteinn Víglundsson, félagsmálaráðherra, kæmu í veg fyrir lokun Hugarafls.
Tengdar fréttir Ungir Píratar vilja koma í veg fyrir lokun Hugarafls Hugarafl eru samtök notenda geðheilbrigðisþjónustu og stærstu samtök utan stofnana sem vinna að þessum málaflokki. Áætlað er að 1,5 milljónir króna renni til Hugarafls á þessu ári samanborið við átta milljónir króna í fyrra. 12. ágúst 2017 11:18 Geta engu lofað en vilja að Hugarafl geti haldið starfi sínu áfram Karl Pétur Jónsson, aðstoðarmaður Þorsteins Víglundssonar, félags-og jafnréttismálaráðherra, segir að fundur hans og Sigrúnar Gunnarsdóttur, aðstoðarmanns Óttars Proppé, heilbrigðisráðherra, með Hugarafli í dag hafi verið mjög gagnlegur og góður. 4. apríl 2017 16:01 „Það kemur því miður ekki á óvart að svona gerist“ Formaður Hugarafls segir sjálfsvíg ungs manns inni á geðdeild til marks um hve mikið álag sé á spítalanum og í geðheilbrigðiskerfinu. 14. ágúst 2017 13:30 Mótmæltu lágum fjárveitingum til Hugarafls: „Þetta er algjör svívirða“ Samtökin Hugarafl stóðu fyrir mótmælum við velferðarráðuneytið í dag vegna þeirrar fjárveitingar sem samtökunum er ætluð á þessu ári. 4. apríl 2017 14:58 Þingmaður Pírata „brjálaður“ yfir skertum framlögum Þingmaður Pírata segir stórfelldan niðurskurð heilbrigðisráðherra á framlögum til samtakanna Hugarafls vera blauta tusku í andlit þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda. Hópur fólks mótmælt þessum niðurskurði í velferðarráðuneytinu í dag. 4. apríl 2017 19:45 Hafa bæði upplifað lamandi kvíða Fyrirlestur um eitthvað fallegt er nýtt leikrit um kvíða. Í verkinu túlka fimm leikarar kvíða og Sigrún Huld og Kjartan Darri eru meðal þeirra en þau hafa bæði upplifað óeðlilegan kvíða í gegnum tíðina. 9. apríl 2017 13:00 Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent Fleiri fréttir Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Sjá meira
Ungir Píratar vilja koma í veg fyrir lokun Hugarafls Hugarafl eru samtök notenda geðheilbrigðisþjónustu og stærstu samtök utan stofnana sem vinna að þessum málaflokki. Áætlað er að 1,5 milljónir króna renni til Hugarafls á þessu ári samanborið við átta milljónir króna í fyrra. 12. ágúst 2017 11:18
Geta engu lofað en vilja að Hugarafl geti haldið starfi sínu áfram Karl Pétur Jónsson, aðstoðarmaður Þorsteins Víglundssonar, félags-og jafnréttismálaráðherra, segir að fundur hans og Sigrúnar Gunnarsdóttur, aðstoðarmanns Óttars Proppé, heilbrigðisráðherra, með Hugarafli í dag hafi verið mjög gagnlegur og góður. 4. apríl 2017 16:01
„Það kemur því miður ekki á óvart að svona gerist“ Formaður Hugarafls segir sjálfsvíg ungs manns inni á geðdeild til marks um hve mikið álag sé á spítalanum og í geðheilbrigðiskerfinu. 14. ágúst 2017 13:30
Mótmæltu lágum fjárveitingum til Hugarafls: „Þetta er algjör svívirða“ Samtökin Hugarafl stóðu fyrir mótmælum við velferðarráðuneytið í dag vegna þeirrar fjárveitingar sem samtökunum er ætluð á þessu ári. 4. apríl 2017 14:58
Þingmaður Pírata „brjálaður“ yfir skertum framlögum Þingmaður Pírata segir stórfelldan niðurskurð heilbrigðisráðherra á framlögum til samtakanna Hugarafls vera blauta tusku í andlit þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda. Hópur fólks mótmælt þessum niðurskurði í velferðarráðuneytinu í dag. 4. apríl 2017 19:45
Hafa bæði upplifað lamandi kvíða Fyrirlestur um eitthvað fallegt er nýtt leikrit um kvíða. Í verkinu túlka fimm leikarar kvíða og Sigrún Huld og Kjartan Darri eru meðal þeirra en þau hafa bæði upplifað óeðlilegan kvíða í gegnum tíðina. 9. apríl 2017 13:00