Fótbolti

Hummels fylgir fordæmi Mata

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mats Hummels ætlar að láta gott af sér leiða.
Mats Hummels ætlar að láta gott af sér leiða. vísir/getty
Mats Hummels, leikmaður Bayern München og þýska landsliðsins, ætlar að fylgja fordæmi Juans Mata og gefa 1% launa sinna til góðgerðamála.

Í þarsíðustu viku greindi Mata frá því að hann ætlaði að gefa 1% af launum til góðgerðamála. Spánverjinn hvatti jafnframt aðra fótboltamenn til að gera slíkt hið sama.

Hummels er fyrsti fótboltamaðurinn sem fylgir fordæmi Manchester United-mannsins.

„Þetta er tækifæri fyrir fótboltann til að bæta heiminn og ég vil vera hluti af því,“ sagði Hummels.

Draumur Mata er að búa til 11 manna úrvalslið leikmanna sem gefa 1% launa sinna til góðgerðamála. Og hann er nú kominn með sterkan miðvörð í liðið sitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×