Sport

Í lyfjabanni í frjálsum íþróttum en má spila í NFL-deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Marquise Goodwin.
Marquise Goodwin. Vísir/Getty
Marquise Goodwin má ekki keppa í frjálsum íþróttum en hann má aftur á móti spila í NFL-deildinni.

Goodwin er að taka út eins árs bann hjá bandaríska lyfjaeftirlitinu en það kemur ekki í veg fyrir að hann spili með San Francisco 49ers í NFL-deildinni á komandi tímabili. BBC segir frá.

Langstökkvarinn Marquise Goodwin reyndi fyrir rúmu ári síðan að vinna sér sæti í Ólympíuliði Bandaríkjanna í frjálsum íþróttum. Það tókst ekki.

Hann segist núna hafa lagt frjálsíþróttaskóna á hilluna fyrir ári síðan þar sem hann ætlaði að einbeita sér að ferli sínum í amerískum fótbolta.

Goodwin heldur því fram að það sé ástæðan fyrir því að hann gaf ekki lyfjaeftirliti Usada upplýsingar um hvar hann héldi sig. Talsmaður Usada sagist þó hafa fengið upplýsingar frá Goodwin fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2017.

Usada ætlaði að lyfjaprófa Marquise Goodwin 17. janúar en hann fannst ekki. Það var í annað skiptið sem hann missti af lyfjaprófi og þegar hann gaf ekki Usada neinar upplýsingar um veru sína á seinni hluta ársins þá var ljóst að hann var hann búinn að fyrirgefa keppnisrétti sínum og kominn í eins árs bann.  Usada náði að prófa hann einu sinni í maí en það var ekki nóg.

Íþróttafólk þarf að gefa Usada upp hvar það sé hægt að hitta á það í einn klukkutíma á hverjum degi sjö daga vikunnar og þessar upplýsingar þarf lyfjaeftirlitið að fá þrjá mánuði fram í tímann. 

Nú er Marquise Goodwin á fullu að undirbúa sig fyrir keppnistímabil með San Francisco 49ers sem hefst í byrjun næsta mánaðar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×