Fótbolti

Halldór Orri: Við erum ekkert að fara gefast upp

Stefán Árni Pálsson skrifar
Halldór Orri Björnsson á æfingu FH í vikunni.
Halldór Orri Björnsson á æfingu FH í vikunni. Vísir/Ernir
„Þetta var bara virkilega ljúf tilfinning, ég náði að tékka boltann inn og smellhitti hann,“ segir Halldór Orri Björnsson, sem skoraði algjört draumamark í kvöld. FH tapaði 2-1 fyrir SC Braga í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. Liðið fer því ekki með gott veganesti í næsta leik sem fram fer í Portúgal eftir viku.

„Það var gaman að sjá boltann í netið en það er samt virkilega svekkjandi að það telji ekki meira.“

Halldór segir að mörkin sem þeir fengu á sig hafi bæði verið keimlík.

„Við erum að missa boltann á mjög hættulegum stað hægra megin á vellinum og þeir nýta sér það. Það var kannski spurning hvort það hefði verið brotið á Emil í seinna markinu."

Halldór segist ekki sjá mikinn gæðamun á þessum liðum. 

„Mér fannst við í raun alveg vera með þá á tímabili og fengum í raun fleiri færi en þeir. Þetta var bara hörkuleikur sem er virkilega svekkjandi að hafa tapað.“

Hann segir að FH liðið hafi núna engu að tapa og mæti bara afslappaðir í næsta leik.

„Það er allt hægt í fótbolta og við erum alls ekkert að fara gefast eitthvað upp, það kemur ekki til greina.“


Tengdar fréttir

Umfjöllun og viðtöl: FH - Braga 1-2 | Nánast útilokað verkefni framundan

FH-ingar eru komnir í erfiða stöðu í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld eftir 2-1 tap á heimavelli á móti portúgalska liðinu Braga. Halldór Orri kom FH yfir í fyrri hálfleik með frábæru marki en Braga nýtti sér klaufagang í vörn FH og tryggði sér sigur með tveimur mörkum í seinni hálfleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×