Enski boltinn

Réttur tímapunktur fyrir Gylfa til að fara í Everton

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson á Goodison Park.
Gylfi Þór Sigurðsson á Goodison Park. Vísir/AFP
„Mér líst mjög vel á að Gylfi hafi farið til Everton. Ég held að þetta hafi verið hárrétt ákvörðun hjá honum,“ segir Bjarni Guðjónsson, knattspyrnuþjálfari og einn af sérfræðingum Messunnar, um þau tíðindi að Gylfi Þór Sigurðsson sé orðinn leikmaður Everton.

„Þessi hugmynd um Leicester fannst mér aldrei neitt sérlega sexí. Ég held að hann sé kominn á mjög góðan stað og það virðist vera mikill vindur í seglunum hjá Everton. Liðið er búið að styrkja sig mikið og það verður mjög spennandi að fylgjast með þessu í vetur. Krafan hlýtur að vera sú að keppa um þessi fjögur efstu sæti í deildinni sem er örugglega eitthvað sem Gylfi hefur beðið eftir að komast í.“



Bjarni efast ekkert um að koma Gylfa til Everton muni hafa mjög jákvæð áhrif á liðið á mörgum stöðum.

„Gylfi hefur svo ofboðslega margt. Það er eðlilega mikið talað um föstu leikatriðin og það mun hafa áhrif enda enginn betri þar en Gylfi. Hann skapar alltaf hættu með spyrnunum sínum,“ segir Bjarni og bendir síðan á vinnsluna í Gylfa sem hljóp mest allra í deildinni síðasta vetur.

„Hann er svo svakalega vinnusamur. Gylfi er ekki bara lúxusleikmaður heldur vinnur hann rosalega mikið fyrir liðið. Sömu sögu er ekki hægt að segja af lúxusleikmönnum eins og Eriksen og Coutinho svo einhverjir séu nefndir. Gylfi gerir það sem gera þarf. Hann getur farið niður og varist eins og sterkir varnarmiðjumenn. Þegar búið er að vinna boltann rýkur hann upp og reynir að gera usla í vörn andstæðingsins. Það að Gylfi hlaupi meira en N’Golo Kante, sem fær mikið hrós fyrir vinnslu, segir sína sögu.“

Það eru flestir sammála um það að frammistaða Gylfa á síðustu leiktíð hafi hreinlega haldið Swansea uppi í úrvalsdeildinni. Gríðarlegt afrek. Nú er hann kominn í miklu stærra lið sem ætlar sér mun stærri hluti. Þar á Gylfi að vera aðalmaðurinn en er hann tilbúinn til að leiða Everton í hóp bestu liðanna?





„Ég efast ekki um að Gylfi mun valda þessu verkefni og ráða við pressuna. Ég held að andlegur styrkur hans sé það mikill. Hann er fagmaður fram í fingurgóma og notar sinn tíma alltaf rétt. Gylfi lætur heldur ekki neitt stíga sér til höfuðs. Ef á móti blæs þá er hann klókur að vinna sig út úr því. Ég hef því engar áhyggjur af Gylfa þarna,“ segir Bjarni bjartsýnn og telur að Gylfi hafi nælt sér í næga reynslu á síðustu árum til þess að geta tekið þetta stóra skref.

„Þetta er flottur tímapunktur fyrir hann að fara í svona lið. Liverpool hefði líka verið frábær kostur fyrir hann sem og allt þar fyrir ofan.“

Nú er mikið spáð og spekúlerað í því hvernig stjóri Everton, Ronald Koeman, ætlar sér að nota dýrasta leikmann Everton frá upphafi en Koeman segir að Gylfi komi með fullkomið jafnvægi inn í liðið.

„Mér sýnist allt stefna í að Koe­man ætli að vera með þrjá miðverði. Hann gæti notað Rooney frammi með Sandro Ramirez og sett Gylfa í holuna fyrir aftan þá. Seamus Coleman og Leighton Baines eru síðan á köntunum. Þeir eru klókir og sókndjarfir bakverðir. Þá er komið jafnvægi í liðið sem er mjög flott,“ segir Bjarni.

„Everton er með þrjá sterka miðverði, þá Michael Keane, Ashley Williams og Phil Jagielka. Svo eru tveir sterkir miðjumenn þar fyrir framan og þá er liðið með fimm menn til þess að sækja. Ég yrði því ekki hissa á því að sjá Gylfa í holunni fyrir aftan tvo sentera. Gylfi getur samt leyst margar stöður og það er eflaust eitt af því sem heillar Koeman.“








Tengdar fréttir

Gylfi Þór og saga dýrasta Íslendingsins

Níu forverar Gylfa Þórs Sigurðssonar sem dýrasta knattspyrnumanns Íslands eru langt frá því að ná samanlagt upp í kaupverð Everton á Gylfa. Eiður Smári Guðjohnsen hafði verið sá dýrasti í sautján ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×