Innlent

Starfsánægja á skóla- og frístundasviði eykst

Benedikt Bóas skrifar
Skólastarf í Hrafnagilsskóla.
Skólastarf í Hrafnagilsskóla. Mynd/heida.is
Samkvæmt viðhorfskönnun meðal starfsfólks skóla- og frístundasviðs frá í vor finnst flestum vinnustaður sinn hafa góða ímynd og eru stoltir af honum. Þá benda niðurstöður til þess að starfsmenn séu á heildina litið ánægðir í starfi og þeim líði vel í vinnunni. Starfsfólk hjá skóla- og frístundasviði telur sig einnig búa við starfsöryggi og upplifa sveigjanleika til að samræma starf og einkalíf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Niðurstöður viðhorfskönnunarinnar sýna að fleira starfsfólki skóla- og frístundasviðs finnst ímynd vinnustaðarins góð samanborið við sambærilega könnun sem gerð var fyrir tveimur árum. Alls finnst 86 prósentum starfsfólks vinnustaðurinn hafa góða ímynd og 88,5 prósent eru stolt af vinnustaðnum sínum. Ánægja með starfsanda eykst einnig milli ára, nær 88 prósentum starfsfólks finnst samstarfsfólkið miðla þekkingu sinni í meiri mæli en áður og að samvinna á vinnustaðnum sé góð. Þá benda niðurstöður könnunarinnar til þess að starfsmenn séu á heildina litið ánægðir í starfi, eða 85,6 prósent þeirra, og 87 prósentum líði vel í vinnunni.

Alls telja 85,7 prósent starfsfólks sviðsins sig búa við starfsöryggi og átta af hverjum tíu starfsmönnum telja sig hafa sveigjanleika til að samræma starf og einkalíf. Könnunin náði til 8.121 starfsmanns. Alls bárust 5.226 svör og var svarhlutfallið því 64 prósent. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×