Fótbolti

Mbappé ekki í hóp í kvöld

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ekki er ljóst hvort Kylian Mbappé verður áfram hjá Monaco.
Ekki er ljóst hvort Kylian Mbappé verður áfram hjá Monaco. vísir/getty
Kylian Mbappé er ekki í leikmannahópi Monaco sem mætir Metz í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Mikil óvissa ríkir um framtíð hins 18 ára gamla Mbappés sem sló í gegn á síðasta tímabili.

Franskir fjölmiðlar hafa greint frá því að Paris Saint-Germain sé nálægt því að kaupa Mbappé. Hann hefur einnig verið orðaður við Real Madrid og Manchester City í sumar.

Mbappé lék fyrstu tvo leiki Monaco á tímabilinu en sat allan tímann á bekknum í 4-1 sigri á Dijon á sunnudaginn.

Leandro Jardim, knattspyrnustjóri Monaco, sagðist ekki hafa verið að refsa Mbappé með því að geyma hann á bekknum heldur að verja hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×