Golf

Var einu höggi frá vallarmetinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Matt Every spilaði vel í gær.
Matt Every spilaði vel í gær. Vísir/Getty
Bandaríkjamaðurinn Matt Every spilaði frábærlega á fyrsta keppnisdegi Wyndham-mótsins sem er hluti af PGA-mótaröðinni. Every spilaði á 61 höggi og var aðeins einu höggi frá vallarmetinu.

Every byrjaði af krafti og fékk örn á fyrstu holu eftir að sett niður rúmlega 100 metra högg. Hann fékk svo sjö fugla til viðbótar á hringnum.

Hann er í 751. sæti heimslistans í golfi og hefur ekki spilað sérlega vel á tímabilinu. Hann hefur ekki komist í gegnum niðurskurðinn á 20 mótum til þessa.

Every hefur hins vegar tvívegis unnið mót á PGA-mótaröðinni, síðast árið 2015. Hann var einu höggi frá því að jafna vallarmetið en til þess hefði hann þurft að setja niður langt pútt fyrir fugli, sem honum tókst ekki.

Svíinn Henrik Stenson er í öðru sæti á átta höggum undir pari en hann spilaði á 62 höggum og fékk engan skolla á hringnum í gær. Stór hópur kylfinga er svo á sjö höggum undir pari en á meðal þeirra er Webb Simpson.

Sýnt er frá Wynham-mótinu á Stöð 2 Sport 4 klukkan 18.00 í dag en stöðin er opin fyrir áskrifendur Golfstöðvarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×