Sport

Aníta keppir á Demantamóti á sunnudaginn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aníta hefur keppt á tveimur Demantamótum í sumar.
Aníta hefur keppt á tveimur Demantamótum í sumar. vísir/epa
Aníta Hinriksdóttir keppir í 800 metra hlaupi á Demantamóti í Birmingham á Englandi á sunnudaginn kemur.

Þetta er þriðja Demantamót Anítu í sumar en hún bætti Íslandsmet sitt í 800 metra hlaupi í Osló er hún hljóp á 2:00,05 mínútum. Þremur dögum síðar keppti hún á Demantamóti í Stokkhólmi og hljóp þá á tímanum 2:00,06 mínútum.

Aníta keppir sem áður segir í 800 metra hlaupi á sunnudaginn. Það telur þó ekki til stiga á Demantamótaröðinni þar sem um aukagrein á mótinu er að ræða.

Aníta á sjöunda besta tímann af þeim ellefu hlaupakonum sem skráðar eru til leiks. Hinar sex sem eiga hraðari tíma en Aníta eiga allar tíma undir tveimur mínútum.

Fyrr í þessum mánuði keppti Aníta í 800 metra hlaupi á HM í frjálsum íþróttum í London en komst ekki áfram úr undanrásunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×